Innihaldslýsing

120 g hveiti
1 1/2 msk lyftiduft
280 ml sódavatn
1/2 tsk sjávarsalt
1/4 tsk hvítur pipar
500 g litlar tígrisrækjur, frá Sælkerafiski
Wesson olía til steikingar
Smáréttur fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Gerið sósuna fyrst með því að blanda öllum hráefnum í skál og smakka til með chilí mauki.
2.Blandið saman hveiti, lyftidufti, salti og pipar og hrærið vel.
3.Veltið rækjunum upp úr hveitinu og setjið á disk.
4.Hellið sódavatni saman við hveitiblönduna sem eftir er og hrærið saman þar til deig myndast.
5.Dýfið hveitihúðuðum rækjum í deigið.
6.Hitið olíu rólega í potti eða wok pönnu. Þegar hún er orðin nægilega heit, látið hluta af rækjunum þar í og steikið.
7.Þegar rækjurnar eru orðnar stökkar og brúnar að lit takið úr olíunni og þerrið á pappír.
8.Setjið í skál og hellið chilí sósunni yfir og blandið vel saman.
9.Berið fram strax.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.