Innihaldslýsing

500 g lax
sjávarsalt og svartur pipar
1 búnt vorlaukur
250 ml sweet chilli sósa frá Blue dragon
ferskt kóríander
1 msk sesamolía frá Blue dragon
1 msk ristuð sesamfræ
2 límónur
Fyrir 2-3

Leiðbeiningar

1.Skerið laxinn í hæfilega stóra bita. Setjið í skál og saltið og piprið.
2.Hellið sweet chilli sósunni út á fiskinn og veltið upp úr sósunni.
3.Skerið 3-4 stöngla af vorlauk í bita.
4.Þræðið upp á grillpinna, fyrst lax, svo vorlauk. Miðið við um 4 laxabita á hvern pinna.
5.Grillið spjótin í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
6.Setjið spjótin á disk og dreypið smá sesamolíu þar yfir og síðan sesamfræjum, vorlauk og söxuðu kóríander.
7.Berið fram með sweet chilli sósu og límónubátum.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.