| 2 msk smjör | |
| 3 skarlottulaukar, saxaðir | |
| 250 g spínat | |
| salt og pipar | |
| 800 g lax | |
| 6 sólþurrkaðir tómatar í olíu | |
| 1 dós 5% sýrður rjómi, t.d. frá Mjólka | |
| 1/2 krukka feti í kryddolíu, t.d. frá Mjólka | |
| fersk basilíka |
Styrkt færsla. Ferskur lax úr fiskbúð FISHERMAN. Uppskrift frá Trines matblogg
| 1. | Hitið smjör á pönnu og steikið laukinn við meðalhita þar til hann er orðinn glær. |
| 2. | Blandið spínati saman við og steikið í 1-2 mínútur. Setjið í ofnfast mót. |
| 3. | Skerið laxinn niður í bita og leggið yfir spínatið. |
| 4. | Setjið sólþurrkaða tómata, sýrðan rjóma, fetaost og basilíku í matvinnsluvél og maukið saman. |
| 5. | Setjið blönduna yfir laxinn og látið í 200°c heitan ofn í um 20 mínútur. |


Leave a Reply