Innihaldslýsing

500 g ferskt Gnocci, t.d. frá RANA
2 hvítlauksrif, pressuð
2 msk extra virgin ólífuolía
1 dós (400 g) maukaðir tómatar, t.d. frá CIRIO
salt
40 g parmesan, rifinn
130 g ferskur mozzarella
fersk basilíka
Styrkt færsla

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu í potti og bætið hvítlauki saman við. Hrærið stöðugt og eldið þar til hann hefur fengið gylltan lit. Takið úr pottinum og geymið.
2.Setjið tómatana og salt í pottinn. Eldið við meðalhita í 10 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. Bætið nokkrum laufum af basilíku saman við og takið af hitanum.
3.Sjóðið gnocchi skv leiðbeiningum á pakkningu (2 mín)
4.Takið vatnið frá og hellið tómatsósunni og helming, af parmesan og hvítlauknum saman við og blandið öllu saman.
5.Setjið í ofnfast mót og skerið mozzarella niður og setjið yfir ásamt afganginum af parmesan. Setjið í 210°c heitan ofn þar til osturinn er bráðinn.

Gnocchi er ekki vel þekkt meðal íslendinga en það er svo sannarlega kominn tími til að við kynnumst þessu hráefni því það er að  alveg himneskt. Gnocchi eru litlar deigkúlur sem eru notaðar í stað pasta en eru ögn seigari. Á ítalíu er þessi réttur ofast borinn fram sem forréttur en einnig sem meðlæti. Í Gnocchi er oftast notað semolina, hveiti, egg, kartöflur og brauðmylsnur. Gnocchi di patate er að mestu unnið úr kartöflum. Það er gaman að prufa að útbúa Gnocchi sjálfur en stundum þegar ekki gefst tími til er líka gott að geta keypt ferskt Gnocchi frá RANA út í búð. Virkilega góður réttur sem ég mæli með að þið prufið.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.