Innihaldslýsing

5 dl mjólk
1 pakki þurrger
10 g salt
2 egg
1 dl ólífuolía
1 kg hveiti
2,5 dl Heinz pizzasósa
mozzarellaostur
skinka
Gerir um 20 snúða

Leiðbeiningar

1.Hitið mjólk þar til hún er orðin fingurvolg. Setjið þurrgerið saman við og látið standa í 5 mínútur.
2.Hrærið egg, olíu og salt vel saman og bætið mjólkurblöndunni saman við.
3.Hnoðið og látið hveiti smátt og smátt saman við.
4.Látið hefast í skál með rökum klút yfir í 60 mínútur.
5.Fletjið deigið út á hveitistráðu borði.
6.Dreyfið pizzusósu yfir deigið, þá skinku og að lokum setjið mozzarellaost yfir allt.
7.Rúllið deigið upp og skerið í bita.
8.Látið á ofnplötu með smjörpappír og bakið í 200°c heitan ofn í 15-20 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.