Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur
3 msk Tandoori paste frá Patak's
3 msk hrein grísk jógúrt
1 lítill rauðlaukur
1 rauð paprika
1 krukka Korma sósa frá Patak's
Salt og chiliduft
250g hýðis basmati hrísgrjón frá Rapunzel
Pappadums frá Patak's
Mango chutney frá Patak's
Naan brauð frá Patak's
Ó hvað ég gæti lifað á indverskum mat! Um daginn langaði mig svo hrikalega í almennilega indverska veislu. Með naan brauðum, pappadums, mangó chutney og öllu. Ég ákvað að prófa Korma sósuna frá Pataks og ég svo sannarlega mælt með henni. Í grunninn er hún mild og mjög bragðgóð en ef maður vill aðeins meiri...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að sjóða hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum
2.Skerið kjúklinginn í bita og setjið í skál. Bætið jógúrti og tandoori mauki saman við og hrærið saman við
3.Skerið paprikuna og rauðlaukinn í strimla
4.Setjið 1 msk af olíu á pönnu og snöggsteikið paprikuna og laukinn. Takið af pönnunni og setjið kjúklinginn út á pönnuna. Steikið í 2 mín og setjið Korma sósuna út á og látið malla í 20 mín.
5.Úðið naan brauðið með vatni og hitið í nokkrar mín. í ofni.
6.Berið fram allt saman. Pappadums er langbest með mango chutney en allt spilar þetta dásamlega heild.

Ó hvað ég gæti lifað á indverskum mat! Um daginn langaði mig svo hrikalega í almennilega indverska veislu. Með naan brauðum, pappadums, mangó chutney og öllu.

Ég ákvað að prófa Korma sósuna frá Pataks og ég svo sannarlega mælt með henni. Í grunninn er hún mild og mjög bragðgóð en ef maður vill aðeins meiri hita er hægt að bæta við smá chili t.d.

Til þess að gera aðeins meiri stemningu finnst mér mjög gott að steikja pappadums með og það er miklu auðveldara en það gæti virst í fyrstu. Mæli með því að þið prófið það með.

Færsla og myndir unnar af Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.