Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur t.d. frá Rose Poultry
8 sneiðar PARMA parmaskinka
1 Brie ostur
8 msk sweet chilí sósa frá Blue dragon
1 box kirsuberjatómatar
salt og pipar
klettasalat
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Skerið tómatana í tvennt og látið í ofnfast mót, með sárið upp. Dreypið smá ólífuolíu yfir þá og saltið og piprið. Eldið í 15-20 mínútur við 190°c hita eða þar til þeir eru farnir að mýkjast.
2.Látið parmaskinku inn í ofn og eldið hana þar til hún er orðin stökk.
3.Skerið kjúklingabringurnar í tvennt þannig að þær verði þynnri. Setjið olíu á pönnu og steikið á báðum hliðum í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið.
4.Látið kjúklinginn í ofnfastmót. Skerið ostinn og látið yfir kjúklinginn. Setjið inn í ofn þar til kjúklingurinn er fulleldaður og osturinn bráðinn.
5.Látið klettasalat á disk, tómata og kjúkling. Setjið 2-3 msk af sweet chilí sósu yfir kjúklinginn og leggið stökka parmaskinkuna yfir allt.
Sweet chilí sósan frá Blue Dragon gerir allt betra

 

 

Samstarf við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.