1 askja Philadelphia rjómaostur með kryddjurtum og hvítlauk | |
1 askja Philadelphia rjómaostur hreinn | |
30 g sýrður rjómi | |
100 g mozzarella ostur, rifinn | |
2 tómatar, saxaðir | |
30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir smátt | |
1/2 búnt fersk basilíka, söxuð | |
1 msk balsamik edik, Pilippo Berio | |
1/2 tsk hvítlaukskrydd | |
1/4 tsk chilíflögur | |
salt og pipar | |
Kryddhjúpur: | |
3/4 bolli brauðrasp | |
1 msk smjör | |
3 msk sólþurrkaðir tómatar, þerraðir og saxaðir smátt | |
3 msk fersk basilíka, smátt söxuð |
Fyrir 12-15 manns
1. | Látið öll hráefnin fyrir ostakúluna saman í skál og blandið vel saman. Látið plastfilmu utan um blönduna og mótið í kúlu. Frystið í 1-2 klst. |
2. | Gerið kryddhjúpinn: Bræðið smjör á pönnu og bætið brauðraspi saman við. Hrærið stöðugt í blöndunni þar til raspið hefur fengið gylltan lit. Kælið og bætið þá basilíku og sólþurrkuðu tómötum saman við. |
3. | Takið ostakúluna úr fyrsti og veltið upp úr kryddhjúpnum. |
4. | Látið ostakúluna á disk ásamt ferskum tómötum, ferskr basiliku og baquette eða góðu kexi. |
Leave a Reply