Innihaldslýsing

150 g möndlur
2 msk chia fræ
2 msk hemp fræ
2 msk hörfræ
3 msk graskersfræ
1 msk kakó
2 tsk kanill
2 skeiðar Amino Marine Collagen frá Feel Iceland
330 g döðlur, mjúkar
100 g dökkt súkkulaði
Þessir orkubitar eru sannkölluð súperfæða sem bragðast dásamlega. Þeir innihalda m.a. AMINO MARINE COLLAGEN sem er framleitt úr íslensku fiskroði, aðallega úr þorski, sem syndir villtur um Atlantshafið. Kollagen er eitt aðal uppbyggingar prótein líkamans og er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum. Einnig er kollagen mjög stór partur af húð, hári og nöglum.

Leiðbeiningar

1.Látið möndlur í matvinnsluvél og malið fínt.
2.Bætið hinum hráefnunum, að döðlum og súkkulaði undarskildu, í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Bætið við 1 msk af heitu vatni ef gengur erfiðlega að blanda saman. Bætið svo döðlunum saman við og blandið saman.
3.Látið blönduna í form með smjörpappír og þrýstið blöndunni niður.
4.Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
5.Látið í kæli/frysti þar til súkkulaðið hefur storknað.
6.Skerið í bita og geymið í loftþéttum umbúðum í ísskáp/frysti.
Færslan er unnin í samstarfi við FEEL ICELAND

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.