Nei jólin eru ekki komin – en sólin mætti í dag og þá er í góðu lagi að gera daginn enn betri með þessari frábæru Daim ístertu. Tertan er með stökkum möndlumarengs sem gerir hana enn hátíðlegri en ef þið hafið ekki tíma til að gera hann þá má alveg sleppa og vinda sér beint í ísgerðina. Hér er á ferðinni snilldarís sem þið munuð elska.
Möndlumarengs | |
3 eggjahvítur (rauðurnar geymdar) | |
150 g sykur | |
150 g möndlur | |
1 msk smjör | |
Daimís | |
3 eggjarauður | |
100 g sykur | |
3 dl rjómi | |
120 g Daim |
Daimís með marengsmöndlubotni
1. | Gerið möndlumarengs. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru að verða stífar og bætið þá sykri saman við, smátt og smátt í einu. Hrærið þar til botninn er orðinn vel stífur og lekur ekki af hrærivélinni þó henni sé lyft upp. |
2. | Hakkið möndlurnar í matvinnsluvél þar til þær eru næstum komnar með hveitilíka áferð. Blandið saman við marengsinn. |
3. | Setjið í 24 cm form með smjörpappír og bakið í 175°c heitum ofni í 30 mínútur. Takið úr ofninum og kælið. |
4. | Gerið því næst ísinn og hrærið eggjarauðurnar og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós. |
5. | Þeytið rjómann blandið varlega saman við eggjablönduna. |
6. | Saxið Daim gróflega eða notið einfaldlega litlu Daimkúlurnar og blandið saman við ísinn. |
7. | Setjið ísinn ofan á marengsbotninn og setjið í frysti í að minnsta kosti 4 klukkustundir. |
8. | Takið ísinn út og leyfið að standa í 10-15 mínútur áður en hans er notið. |
Leave a Reply