Innihaldslýsing

4 stk 150 g Hr. Fullkominn grillborgarar frá Norðlenska
8 beikonsneiðar
200 g ferskar mozzarellakúlur
4 msk hvítvín (má sleppa)
salt og pipar
hamborgarakrydd
3 tómatar, smátt skornir
1/2 paprika, smátt skorin
1/4 rauðlaukur, smátt saxaður
fersk steinselja, söxuð
Annað: Hamborgarabrauð, sósa, franskar
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Þrýstið botni á litlu glasi í miðju borgaranna svo það myndist smá hola. Kryddið borgarana með salti, pipar og/eða hamborgarakryddi.
2.Skerið mozzarellaostinn í litla bita og setjið í holuna.
3.Vefið 2 beikonsneiðar um hliðar hvers borgara.
4.Setjið 1 msk af hvítvíni yfir ostinn á hverjum borgara fyrir sig.
5.Grillið þar til þeir eru tilbúnir og beikonið stökkt. Hitið brauðin ef þið notið þau.
6.Gerið tómatsalsa: Skerið papriku, tómata, rauðlauk og steinselju smátt og blandið saman í skál ásamt 1 msk af ólífuolíu. Smakkið til með salti og pipar.
7.Berið borgana fram með tómatsala, frönskum, sósu, grænmeti og hamborgarabrauði.

Beef Chuck“ ham­borg­ararnir eru unnir úr Beef chuck og inni­halda 25% fitu. „Beef Chuck“ borg­ar­ar eru vin­sæl­ir meðal grill­kokka á ham­borg­ara­stöðum um all­an heim, en fitu­inni­haldið gef­ur sér­stak­lega gott grill­bragð og ham­borg­ar­arn­ir verða safa­rík­ari á grill­inu en venju­leg­ir ham­borg­ar­ar. Hr. Full­kom­inn er grill­borg­ari úr sér­völdu, ís­lensku „Beef Chuck“ nauta­kjöti og eru borg­ar­arn­ir seld­ir tveir sam­an í pakkn­ingu.”  Hr. Full­kom­inn fæst í versl­un­um Krón­unn­ar og Heim­kaup.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Norðlenska

 

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.