![](https://grgs.is/wp-content/uploads/2021/10/IMG_5497.jpg)
Hrekkjavöku graskerssúpa með draugalegum brauðstöngum
![Hrekkjavöku graskerssúpa með draugalegum brauðstöngum Hrekkjavöku graskerssúpa með draugalegum brauðstöngum](https://grgs.is/wp-content/uploads/2021/10/IMG_5397-1.jpg)
Graskerssúpa
1 grasker
1 1/2 msk púðursykur
1 laukur
3 hvítlauksrif
2 tsk rautt karrí
1 dl rjómi
2 stk grænmetiskraftur frá Knorr blandað saman við 5 dl heitt vatn
1 dl rjómi
ólífuolía
sítrónusafi
salt og pipar
Skafið úr graskerinu, skerið í teninga og látið í skál ásamt 1/2 dl af ólífuolíu, púðursykri og smá sjávarsalt. Bakið í 180°c heitum ofni í 30 mínútur eða þar til það er farið að mýkjast. Skerið lauk, hvítlauk og epli niður og steikið í olíu. Bætið karrímauki saman við og blandið vel saman. Látið graskerið í blandara ásamt laukblöndunni og grænmetissoði. Blandið þar til allt hefur blandast vel saman. Látið aftur í pottinn og bætið rjóma, sítrónusafa, salti og pipar saman við. Berið fram með daugalegum brauðstöngum.
Draugalegar brauðstangir
1 tilbúið pizzadeig
1 egg, léttþeytt
sesamfræ frá Til hamingju
möndlur frá Til hamingju
rauður matarlitur
Skiptið pizzadeiginu í bita og rúllið í brauðstangir. Veltið möndlum upp úr rauðum matarlit og ristið í ofni í 5-10 mínútur. Kælið möndlurnar og stingið þeim í deigið. Penslið brauðstangirnar með eggi og stráið sesamfræjum yfir. Bakið við 180°c heitan ofn í 15-20 mínútur eða þar til þær eru komnar með gylltan lit.
Það er tilvalið að draga út matarsóun og nýta graskerin til að gera bragðgóða og holla máltíð
![](https://grgs.is/wp-content/uploads/2021/10/IMG_5497.jpg)
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply