Rigatoni pasta finnst mér alltaf svo skemmtilegt að bera fram þar sem það er ekki alveg í laginu eins og það sem við erum vön að kaupa. Það dregur vel í sig góðar sósur og hér er ég með græna vegan pestóið frá Sacla sem er alveg framúrskarandi gott í pastarétti. Að viðbættum grænum og svörtum ólífum ásamt sólþurrkuðu tómötunum frá Sacla sem gera þennan rétt algjörlega ómótstæðilegan. Fljótlegur vegan pastaréttur sem tekur enga stund að græja, engin afsökun fyrir því að sleppa því að elda!
Leave a Reply