Innihaldslýsing

olía til steikingar
2-3 hvítlauksrif, smátt söxuð
1/2 laukur, smátt saxaður
1 1/2 msk garam masala
1 tsk kóríanderkrydd
1 tsk cumin (ekki kúmen)
1 tsk paprikukrydd
1 blómkál
1 dós saxaðir tómatar
2 1/2 dl kókosmjólk, t.d frá Blue dragon
2 dl vatn + 1 tsk grænmetiskraftur, t.d. frá Oscar
salt og pipar
ferskt kóríander (má sleppa)
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu á pönnu og steikið lauk, hvítlauk, garam masala, kóríander, kúmin og paprikukrydd í um 1-2 mínútur (hrærið stöðugt) eða þar til blandan er farin að gefa frá sér góðan ilm.
2.Skerið blómkálið niður og bætið út á pönnuna og steikið áfram í 2 mínútur.
3.Bætið þá tómötum, kókosmjólk, vatni og grænmetiskrafti saman við og látið malla í 15 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.
4.Bætið kjúklingabaunum saman við og hitið í 3-4 mínútur til viðbótar.
5.Setjið í skál og berið fram með hrísgrjónum og etv. fersku kóríander.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.