Innihaldslýsing

650g magurt nautakjöt (mínútusteik)
1/2 græn paprika
1/2 rauð paprika
1 brokkolí haus lítill
1 grænn chili
1 flaska Oyster sauce frá Blue dragon
1 poki Teriyaki sósa frá Blue dragon
1 msk maizena mjöl
2 msk sojasósa
1 msk hrísgrjónaedik frá Blue dragon
2 msk vatn
2 msk sesamolía, ég notaði frá Rapunzel
Það er alveg ótrúlega auðvelt að græja sér góðan asískan mat heima. Það tekur enga stund að gera þennan stórgóða wok rétt. Það eru ekki mörg innihaldsefni og ég fullyrði að það taki ekki meira en 20 mínútur frá því að hráefnin eru í umbúðunum og þangað til rétturinn er kominn á diska.    

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að skera nautakjötið í þunna strimla þvert á línurnar í kjötinu
2.Skerið paprikurnar í strimla, chili í sneiðar og brokkolí í bita
3.Setjið kjötið í skál og setjið sojasósu, hrísgrjónaedik og maizena yfir kjötið og blandið saman. Látið bíða á meðan þið skerið grænmetið
4.Hitið 1 msk af sesamolíu á wokpönnu (eða bara venjulega) og hitið þar til fer að rjúka úr olíunni. Setjið nautakjötið út á og steikið í 2-3 mín. Takið kjötið af pönnunni og sigtið vökvann frá og geymið aðeins
5.Setjið aðra msk af sesamolíu á pönnuna og hitið vel, setjið grænmetið út á og steikið í 3 mín.
6.Bætið kjötinu aftur út í ásamt teriyaki sósu og ostrusósu. Bætið vatni út í og steikið áfram í 3-4 mín.
7.Berið fram með hrísgrjónum

Það er alveg ótrúlega auðvelt að græja sér góðan asískan mat heima. Það tekur enga stund að gera þennan stórgóða wok rétt. Það eru ekki mörg innihaldsefni og ég fullyrði að það taki ekki meira en 20 mínútur frá því að hráefnin eru í umbúðunum og þangað til rétturinn er kominn á diska.

 

 

Uppskrift og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf. umboðsaðila Blue dragon

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.