Skerið blómkál og kartöflu niður. Blandið kryddum saman í skál. Hellið olíu yfir grænmetið og stráið kryddum yfir. Kreystið sítrónusafa yfir allt. Blandið vel saman og dreyfið úr grænmetinu á ofnplötu með smjörpappír. Látið í 180°c heitan ofn í 25 mínútur. Takið vökvan frá svörtu baununum og bætið baunum saman við. Hitið í 5 mínútur til viðbótar.
Chipotle kasjúhnetusósa
50 g kasjúhnetur
2 msk BULL'S-EYE Smokey Chipotle sósa
1-2 hvítlauksrif
1/2 tsk chilíduft
1/2 tsk reykt paprikukrydd (eða venjulegt)
1/2 tsk cumin
1/4 tsk sjávarsalt
120 ml vatn
safi úr 1 límónu
Setjið öll hráefnin saman í blandara eða matvinnsluvél. Ef vélin er ekki nægilega öflug er gott að láta kasjúhneturnar liggja í bleyti áður en öllu er blandað saman. Ef sósan er of þunn þá má bæta við hnetum. En hún þykknar örlítið í kæli. Smakkið til með kryddum og sósu.
Annað
1 pakki mini tortillur frá Mission
Guagamole
Kóríander
Ristið tortillurnar á pönnu eða yfir eldi á gaseldavél. Setjið saman og endið á chipotle sósu.
Leave a Reply