

| 700 g þorskur | |
| salt og pipar | |
| 150 g beikon, skorið í litla bita og steikt | |
| 1 laukur | |
| 2,5 dl rjómi frá Gott í matinn | |
| 1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn | |
| 1/2 búnt graslaukur, saxaður smátt | |
| 1 msk dijon sinnep | |
| 1 dl rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn |
Fiskur er svo miklu meira en bara soðin ýsa. Hér höfum við þorskhnakka með dassi af rjóma og alveg fullt af osti sem gerir fiskréttinn að algjörum lúxus!
| 1. | Skerið fiskinn í 2-3 bita, saltið og piprið. |
| 2. | Skerið beikon og lauk niður og steikið á pönnu. |
| 3. | Blandið rjóma, sýrðan rjóma, graslauk og sinnep saman í skál og hellið yfir fiskinn. Látið beikon og laukinn yfir og endið á að strá mozzarellaosti yfir allt. |
| 4. | Bakið í 210°c heitum ofni í 20 mínútur. |

Leave a Reply