Þrátt fyrir að vera ekki mikill aðdáandi svínakjöts þá gerir maður svo sannarlega undantekningar þegar kemur að fylltum svínalundum. Það er bara eitthvað svo mikið “gúrm” við þennan mat og ég tala nú ekki um þegar lundirnar eru fylltar með fetaosti, pestó og döðlum eins og í þessari uppskrift og bornar fram með piparostarjómasósu. Nei sko namm!
2 svínalundir | |
1 krukka Feti í ólífum og kryddolíu, frá Mjólka | |
2 hvítlauksrif, pressuð | |
1 krukka rautt pestó | |
50 g steinlausar döðlur, saxaðar | |
handfylli steinselja, söxuð | |
salt og pipar | |
annað t.d. beikon eða parmaskinka | |
1 stk piparost | |
250 ml rjómi |
Færslan er unnin í samstarfi við Mjólku.
1. | Skerið svínalundina þvert í miðju. |
2. | Blandið saman fetaosti, hvítlauki, pestó, döðlum og saxaðri steinselju og setjið í lundirnar. Saltið og piprið og lokið með tannstönglum. |
3. | Brúnið lundirnar á pönnu. |
4. | Ef hugurinn girnist má vefja lundina með beikoni eða parmaskinku. Gott er að nota tannstöngla eða álíka til að fyllingin detti ekki úr. |
5. | Setjið í 180°c heitan ofn í um það bil 20 mínútur eða grillið á útigrilli. |
6. | Leyfið lundunum að standa í 5-10 mínútur áður en þær eru skornar í sneiðar |
7. | Gerið sósuna og setjið hráefnin í pott og bræðið við vægan hita. |
Leave a Reply