

| 3/4 dl hveiti | |
| 75 g smjör, mjúkt | |
| 1 dl OTA haframjöl (ég nota grófari tegundina) | |
| 1 dl sykur | |
| 1/2 dl hakkaðar möndlur | |
| 50 g dökkt súkkulaði, saxað | |
| 2 msk flórsykur | |
| fersk ber | |
| vanilluís og/eða rjómi |
Fyrir 4
| 1. | Blandið hveiti, smjöri, haframjöli, sykri, möndlum og dökku súkkulaði saman í skál. Hnoðið saman. |
| 2. | Mótið 4 skálar úr álpappír og skiptið deiginu þar á milli. Stráið flórsykri yfir. Grillið við miðlungshita í 15 mínútur. |
| 3. | Berið fram með ferskum ávöxtum og vanilluís og/eða rjóma. |

Leave your comment to Cancel Reply