Innihaldslýsing

100 g hveiti
150 g sykur
3 msk kakó
1 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
115 g smjör, brætt
2 stór egg, þeytt
2 tsk vanilludropar
50 g pekanhnetur, ristaðar
2 handfyllir sykurpúðar, saxaðir
Súkkulaðikrem:
60 g smjör, brætt
2 msk kakó
60 ml mjólk í dós (condenced milk)
100 g flórsykur
Kakan er sem þess virði

Leiðbeiningar

1.Látið hveiti, sykur, kakó, lyftiduft og salt saman í skál.
2.Þeytið smjör egg og vanilludropa saman. Blandið þurrefnum saman við.
3.Látið í smurt bökunarform og bakið í 180°c heitum ofni í 25-30 mínútur.
4.Látið sykurpúðana yfir kökuna og bakið áfram í nokkrar mínútur eða þar til sykurpúðarnir eru farnir að bráðna.
5.Blandið öllum hráefnunum fyrir súkkulaðikremið saman og látið varlega yfir sykurpúðana.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.