80 g OTA haframjöl | |
4 msk möndlumjöl | |
240 g hnetusmjör | |
120 ml hlynsíróp eða hunang | |
1 tsk vanilludropar | |
1/2 tsk salt | |
Súkkulaðitoppur: | |
100 g súkkulaði | |
2 msk hnetusmjör |
Gerir um 12 stk
1. | Blandið haframjöli, möndlumjöli, hnetusmjöri, sírópi, vanilludropum og salti vel saman í skál. Látið í form og setjið í kæli í 2 klst. |
2. | Súkkulaðitoppur: Bræðið súkkulaði og hnetusmjör yfir vatnsbaði og hrærið stöðugt. Takið hafragottið úr kæli og látið súkkulaðið yfir. Stráið sjávarsalti yfir og látið í frysti í aðra klukkustund. |
Leave a Reply