Innihaldslýsing

110 g smjör, mjúkt
100 g sykur
100 g púðursykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk salt
80 g OTA haframjöl
50 g kókosmjöl
90 g hveiti
1/2 tsk lyftiduft
Uppskriftin gerir um 36 dásamlega smákökur

Leiðbeiningar

1.Hrærið smjör, sykur og púðursykur saman þar til allt hefur blandast vel.
2.Bætið eggi vanillu og salti saman við og hrærið áfram það til blanda er orðin létt og ljós.
3.Látið þá haframjöl, kókosmjöl, hveiti og lyftiduft saman við og hrærið á lágri stillingu þar til allt hefur rétt blandast saman.
4.Látið með teskeið á ofnplötu með smjörpappír og bakið í 175°c heitum ofni10 mínútur eða þar til þær hafa fengið gylltan lit.

 

 

Uppskriftin er unnin í samstarfi við OTA Solgryn

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.