Þessi færsla er unnin í samstarfi við Stonewall Kitchen á Íslandi
Gerir 10-12 stk
1. | Marengs: Setjið eggjahvítur í hreina og þurra hrærivélaskál. Þeytið vel og bætið síðan sykri saman við og hrærið áfram í fimm mínútur eða þar til marengsinn er orðinn stífur. Bætið vanilludropum, ediki og sterkjunni varlega saman með sleif. |
2. | Setjið í sprautupoka og gerið litla marengskökur á smjörpappír. Um 10-12 stk. |
3. | Setjið í 100°c heitan ofn í klukkustund. Slökkvið á ofninum en leyfið marengsinum að kólna í ofninum. |
4. | Hrærið mascarpone, rjóma og vanillu saman. Bætið sykri smátt og smátt saman við og hrærið áfram þar til kremið hefur náð passlegri þykkt. |
5. | Látið mascarpone kremið yfir marengsinn, um 2-3 matskeiðar. Setjið þá 1 msk af lemon curd þar yfir. |
6. | Skreytið með berjum, myntulaufum, fínrifnum sítrónuberki og stráið flórsykri yfir allt. |
Leave a Reply