Innihaldslýsing

1 3/4 bolli hveiti, ég notaði rautt Kornax
2/3 bolli dökkt kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 bolli hrásykur, má nota venjulegan hvítan
1/2 bolli púðursykur
2 stór egg við stofuhita
1/2 bolli jurtaolía
200g grísk jógúrt
2 tsk vanilludropar
1 bolli sterkt kaffi (má skipta út fyrir heitt vatn ef þið eruð viðkvæm fyrir kaffibragði)
Súkkulaðitertur geta verið eins ólíkar og þær eru margar. Sum bæta við sultu, bönunum eða karamellu til dæmis í fyllinguna, þær geta verið með ríkjandi vanillubragð, kakóbragð eða jafnvel piparmyntu. Í ljósari kantinum eða dökkar, með smjörkremi eða ganache jafnvel. Þær eiga þó það sameiginlegt að alltaf eru þær vinsælar, hvort sem er hjá börnunum...

Leiðbeiningar

1.Hitið ofninn í 175°C blástur og smyrjið tvö kringlótt kökuform 20cm í þvermál.
2.Sigtið þurrefni saman í skál, setjið sykur og púðursykur saman við og hrærið vel þannig að engir kekkir séu eftir.
3.Setjið egg, olíu, gríska jógúrt og vanillu saman í skál og pískið. Blandið saman við þurrefnin. Blandið kaffinu rólega saman við, passið að hræra deigið ekki of mikið annars verður kakan seig.
4.Skiptið deiginu jafnt í formin, mér finnst best að vigta í formin til að vera nákvæm.
5.Bakið í 35 mín, botnarnir eru tilbúnir þegar prjóni sem stungið er í þá kemur hreinn upp.

Súkkulaðitertur geta verið eins ólíkar og þær eru margar. Sum bæta við sultu, bönunum eða karamellu til dæmis í fyllinguna, þær geta verið með ríkjandi vanillubragð, kakóbragð eða jafnvel piparmyntu. Í ljósari kantinum eða dökkar, með smjörkremi eða ganache jafnvel. Þær eiga þó það sameiginlegt að alltaf eru þær vinsælar, hvort sem er hjá börnunum eða fullorðnum.

Þessi kaka er ótrúlega mjúk og djúsí, í dekkri kantinum og með votti af kaffibragði (ef þið eruð ekki hrifin af kaffi er snjallt að skipta því út fyrir heitt vatn). Kremið er silkimjúkt og inniheldur 2 tegundir af gæðasúkkulaði. Ekki of sæt eða væmin, bara djúpt og gott súkkulaðibragð. Heiðarleg og fullkomin fyrir sanna unnendur súkkulaðis.

Gleðilega páska kæru vinir!

 

 

 

Færsla og myndir eftir Völlu

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.