2 hvítlaukar, saxaðir | |
1 laukur, smátt saxaður | |
500 g nautahakk | |
2 dósir tómatar, saxaðir | |
1 dl - 2 grasker, soðið og maukað | |
1 msk oregano | |
1 teningur nautakraftur frá Knorr | |
2 msk tómatsósa | |
4 paprikur | |
100 g mozzarella | |
2 1/2 dl kús kús frá Lifandi hamingju |
1. | Hitið olíu á pönnu og steikið lauk og hvítlauk við vægan hita í 2-3 mínútur. |
2. | Bætið nautahakki saman við og steikið þar til það er ekki lengur rautt. |
3. | Sjóðið graskerið þar til það er farið að mýkjast. Látið í blandara og maukið. |
4. | Bætið graskersmaukinu út á pönnuna ásamt tómötum, nautakrafti, oregano og tómatsósu. Graskerið gefur réttinum rjómakennda áferð. Látið malla í 30 mínútur við vægan hita. |
5. | Skerið efri hlutann af paprikunum og fræhreinsið. Skerið út andlit á paprikurnar. Eldið þær í 180c heitum ofni í um 20 mín. |
6. | Takið úr ofni og fyllið með kjötsósunni. Stráið osti yfir og eldið í 10 mínútur til viðbótar eða þar til osturinn er bráðinn. |
7. | Sjóðið kús kús samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Berið fram með paprikunum og njótið vel. |
Leave a Reply