
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

| 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 4 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
| 4 dl kjúklingasoð, t.d. frá Oscars | |
| börkur af 1 sítrónu, fínrifinn | |
| 1 msk sítrónusafi | |
| 3 msk ferskt rósmarín, saxað | |
| 2 dl matreiðslurjómi |
| 1. | Hitið olíu á pönnu og brúnið kjúklingabringurnar á öllum hliðum. Takið af pönnunni og geymið. |
| 2. | Setjið hvítlauk, börk af sítrónu, sítrónusafa og rósmarín út á pönnuna og steikið lítillega. Bætið kjúklingasoðinu þá út á pönnuna. |
| 3. | Setjið kjúklingabringurnar út á pönnuna og setjið lok yfir. Látið malla í 20 mínútur. |
| 4. | Hellið rjóma út á pönnuna og hitið, en látið ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar. |
| 5. | Berið fram með hrísgrjónum eða tagliatelle og góðu salati. |

Færslan er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply