Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
2 msk ólífuolía
4 hvítlauksrif, smátt söxuð
4 dl kjúklingasoð, t.d. frá Oscars
börkur af 1 sítrónu, fínrifinn
1 msk sítrónusafi
3 msk ferskt rósmarín, saxað
2 dl matreiðslurjómi
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu á pönnu og brúnið kjúklingabringurnar á öllum hliðum. Takið af pönnunni og geymið.
2.Setjið hvítlauk, börk af sítrónu, sítrónusafa og rósmarín út á pönnuna og steikið lítillega. Bætið kjúklingasoðinu þá út á pönnuna.
3.Setjið kjúklingabringurnar út á pönnuna og setjið lok yfir. Látið malla í 20 mínútur.
4.Hellið rjóma út á pönnuna og hitið, en látið ekki sjóða. Smakkið til með salti og pipar.
5.Berið fram með hrísgrjónum eða tagliatelle og góðu salati.
Einfaldur og stórgóður kjúklingaréttur sem slær í gegn

Færslan er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.