Innihaldslýsing

1kg nautahakk
1 stór laukur saxaður smátt
1 bolli brauðrasp
2 egg
1 msk þurrkað oregano
1 msk Liquid Organic hvítlaukur
2 tsk Liquid Organic basilika
1 tsk Liquid Organic chili
Salt og nýmalaður svartur pipar
Þessar kjötbollur eru alveg ótrúlega þægilegar, það tekur enga stund að útbúa þær og þær eru síðan bakaðar í ofni í stað þess að þurfa að standa við pönnuna og steikja þær. Það sem gerir þær alveg ómótstæðilegar eru kryddin frá Liquid Organic en það eru fersk krydd sem koma í litlum flöskum. Sparar tíma...

Leiðbeiningar

1.Saxið laukinn smátt og setjið öll hráefni í kjötbollurnar í stóra skál. Hnoðið saman með höndunum þar til öll hráefnin eru blönduð saman, varist að hnoða kjötdeigið of mikið þó.
2.Hitið ofninn í 200°C blástur.
3.Mótið kjötbollur sem eru rétt aðeins minni en golfkúla, mér finnst best að gera það með ískúluskeið til að hafa þær sem jafnastar.
4.Raðið bollunum á ofnplötu klædda bökunarpappír, þegar allar bollurnar hafa verið mótaðar, setjið þið plöturnar í ofninn og bakið í 20 mín.
5.Á meðan bollurnar bakast er gott að gera sósuna og sjóða spaghettíið.

Þessar kjötbollur eru alveg ótrúlega þægilegar, það tekur enga stund að útbúa þær og þær eru síðan bakaðar í ofni í stað þess að þurfa að standa við pönnuna og steikja þær. Það sem gerir þær alveg ómótstæðilegar eru kryddin frá Liquid Organic en það eru fersk krydd sem koma í litlum flöskum. Sparar tíma og fyrirhöfn og gefa fullkomið kryddbragð. Í þessar nota ég þrjár tegundir, chili, hvítlauk og basiliku. Það besta er að flöskurnar geymast lengi og því þurfum við ekki að vera að henda afgangnum af kryddunum eins og við lendum oft í þegar við kaupum fersk krydd.

Ég nota kryddin auðvitað í sósuna líka sem er gerð frá grunni og er einnig mjög einföld og gott að græja hana á meðan bollurnar eru í ofninum. Svo sýð ég gott spaghettí og ber fram með bollunum og sósunni. Þetta er frekar stór uppskrift en ég mæli með að taka helminginn af bollunum og frysta þær. Frábært að eiga tilbúnar bollur í frysti þegar við nennum ekki að elda.

 

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.