Innihaldslýsing

700 g nautahakk
3 hvítlauksrif
2 skarlottlaukar
1 tsk chilí flögur
1 tsk heitt pizza krydd
1 tsk svartur piprar, nýmalaður
6 stór laufblöð af basilíku
½ búnt af flatri steinselju
1 eggjarauða
½ msk ítölsk hvítlauksblanda (krydd)
5 msk rifinn Parmesan
5 msk fínt brauðrasp
mjólk
1 tsk sjávarsalt
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Kjötbollur: Setjið brauðrasp í bolla og hellið mjólkinni yfir þannig að hún þekji allt raspið, látið standa. Hitið ofninn í 200° yfir og undir hita.
2.Setjið hakkið í djúpa skál og myndið hreiður í miðjunni. Skerið smátt lauk og hvítlauk. Steikið upp úr ólifuolíu ásamt chillifögum, heitu pizza kryddi og svörtum pipar.
3.Skerið basil og steinselju. Setjið í hreiðrið basil, steinselju, parmsesan, eggjarauðu, brauðrasp, salt, ítalska hvítlauksblöndu ásamt öllu sem var steikt á pönnunni. Hrærið rólega saman.
4.Mótið bollur á stærð við golfkúlu, dustið smá hveiti á þær og létt steikið á pönnu. Um 2-3 mín á hvorri hlið.
5.Færið nú í eldfast mót, helliði sósuni yfir bollurnar, bætið við ferskum mozzarella osti og inni ofn í 15 mín. Berið fram með spaghetti eða tagliatelle.

Góðar Ítalskar kjöbollur gera eitthvað sérstakt við sálina, það má segja að þær knúsi okkur innanfrá. Við höfum lengi verið í leit að fullkomnum Ítölskum kjötbollum, farið víða og smakkað ófáar. Sumar góðar, aðrar ekki. Síðan hefur matarævintýrið sem við elskum svo mikið tekið okkur hingað – við lögðumst í rannsóknarvinnu, skoðuðum margar aðferðir og uppskriftir. Loksins! Við lögðum það sem við höfum lært saman í eitt og ætlum stoltir að deila með ykkur uppskriftinni. Þessar hafa allt, bragðið, áferðina og mýktina. En það má ekki gleyma hvað það er sem fullkomnar góðar ítalskar kjötbollur. Það er að sjalfsögðu bragðmikið tómat marinara.

Ef þið viljið sjá okkur gera þessa uppskrift, farið á Instagram síðuna okkar @Matarmenn og fundið það undir „highlights“.

Matarmenn,

Anton og Bjarki.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.