Innihaldslýsing

300 g brauðhveiti
1 1/2 tsk þurrger
1 tsk salt
1 tsk sykur
1 1/2 msk ólífuolía
200 ml vatn, volgt
Gerir 2 pizzur.

Leiðbeiningar

1.Setjið gerið saman við vatnið, ásamt sykri og látið standa í smá stund. Blandið öllum hráefnunum fyrir pizzadeigið saman og hnoðið vel.
2.Setjið deigið í olíuborna skál og látið hefast í um klukkustund.
3.Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Hitið olíu á pönnu og setjið laukinn út á pönnuna ásamt sykri og smá salti. Hafið vægan hita á hellunni og hrærið reglulega í lauknum í um 20 mínútur.
4.Skerið kartöflurnar í þunnar skífur og setjið í pott með sjóðandi vatni í 5 mínútur eða þar til þær eru farnar að mýkjast.
5.Þerrið kartöflurnar og blandið þeim saman við olíu, rósmarín og salti og pipar.
6.Skiptið pizzadeiginu í tvennt og fletjið út. Setjið botninn á smjörpappír og stráið lauknum yfir botnana. Þá næst mozzarella osti og að lokum kartöflunum. Endið á parmesaosti.
7.Bakið í 220°c heitum ofni í um 20-25 mínútur eða þar til osturinn hefur fengið gylltan lit.

Það er líka mjög gott að setja festaost yfir kartöflurnar.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.