Norðlenska hefur sett nýjar vörur á markað í samstarfi við íslenska sprotafyrirtækið Sprettu. Sprettur eru hollari og ríkari af bætiefnum en annað grænmeti og algjör ofurfæða. Með því að nota engin eiturefni, lágmarka orkuþörf og losa engan ólífrænan úrgang er framleiðslan eins ábyrg og völ er á og neytandinn beinlínis þátttakandi í bættu neyslumynstri, styttri flutningsleiðum og hollari matvælaneyslu.
Nautabollurnar eru úr íslensku hágæða nautakjöti og ferskum sprettum. Hér er það miðjarðarhafskryddið basilika sem ræður för og eru þær því upplagðar í klassíska pastarétti og í tómatlagaðar sósur. Nautabollurnar eru líka bragðgóðar kaldar og má því auðveldlega lauma þeim í nestisboxið með smávegis af pasta og tómatsósu fyrir yngstu kynslóðina. Nautabollurnar eru brjálæðislega góðar í langlokur með grænmeti og osti og hitaðar á grilli eða í ofni.
Lambabollurnar eru eins hrein fæða og hugsast getur, íslenskt lambakjöt og ferskar kóríandersprettur sem gefa bollunum Mið-Austurlanda-keim en þar leikur kóríander lykilhlutverk. Þær eru tilvaldar einar og sér með góðri, kaldri hvítlaukssósu, mangó-chutney og hrísgrjónum. Einnig er upplagt að skella þeim í pítuna með grænmeti og sósu að eigin vali. Lambabollurnar eru frábærar helmingaðar í heimagerðar “meat´n cheese” pizzur og svo bara bornar fram fulleldaðar á veisluborð með myntusósu eða “chili mayo”.
Krónan er í samstarfi við Norðlenska og Sprettu og verða vörurnar eingöngu seldar
í verslunum Krónunnar.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Norðslenska.
Leave a Reply