Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes og gerð að fyrirmynd VALDEMARSRO.
Fyrir 4
1. | Hrærið súrmjólk og hvítlauk saman. Skerið kjúklinginn niður í passlega bita og leggið í marineringuna. Marinerið í 30 mínútur eða lengur ef tími gefst. |
2. | Setjið rasp, paprikukrydd, salt og pipar saman í skál. |
3. | Setjið eggjahvítur í skál og pískið með gaffli. |
4. | Veltið kjúklingnum fyrst upp úr eggjahvítunum og því næst raspinu. Leggið á ofnplötu. |
5. | Ef þið hafið tíma setjið í kæli í 30 mínútur eða lengur. |
6. | Bakið í 180°c heitum ofni* í 30-35 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
7. | Annar eldunarmöguleiki er að setja steikingarolíu (t.d. Wesson) í djúpa pönnu. Hita hana vel og djúpsteikja bitana. |
Leave a Reply