Ofureinfaldur, fljótlegur og dásamlega bragðgóður kjúklingaréttur með sætkartöflum og ljúfri jalapeno jógúrtsósu sem setur punktinn yfir i-ið. Þennan rétt bar ég fram með hrísgrjónum, góðu salati og nachos. Þessi vakti mikla lukku!   Dásamleg jógúrtsósan setur punktinn yfir i-ið   Kjúklingatortilla með sætum kartöflum og jalapenojógúrtsósu Fyrir 4 1 laukur, saxaður 1 lítil sæt kartafla,...

Ofureinfaldur, fljótlegur og dásamlega bragðgóður kjúklingaréttur með sætkartöflum og ljúfri jalapeno jógúrtsósu sem setur punktinn yfir i-ið. Þennan rétt bar ég fram með hrísgrjónum, góðu salati og nachos. Þessi vakti mikla lukku!

 

Dásamleg jógúrtsósan setur punktinn yfir i-ið

 

Kjúklingatortilla með sætum kartöflum og jalapenojógúrtsósu
Fyrir 4

1 laukur, saxaður
1 lítil sæt kartafla, skorin í bita
2 hvítlauksrif, pressuð
600 g kjúklingur
1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
1 tsk chiliduft
salt og pipar
1/2 búnt kóríander, saxað
fetaostur í kryddolíu, t.d. frá Mjólka
1 dós svartar baunir, vökvi síaður frá
rifinn ostur
tortilla

Jalapeno jógúrtsósa
240 ml Ab mjólk, t.d. frá Mjólka
1 jalapeno, fræhreinsað og saxað
safi úr 1 lime
sjávarsalt

  1. Setjið olíu á pönnu. Þegar hún er orðin heit látið lauk og sætar kartöflur þar útá og steikið í um 5 mínútur eða þar til laukurinn er byrjaður að fá gylltan lit. Bætið hvítlauk út á pönnuna og steikið í nokkrar sekúntur. Bætið kjúklingi út á pönnuna og steikið í 5-8 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn.
  2. Bætið chilíkryddi, cumin og salt og pipar saman við. Setjið 120 ml af vatni út á pönnuna og látið malla þar til vatnið er uppgufað. Hrærið af og til meðan á suðunni stendur. Takið af pönnunni og bætið kóríander og svörtum baunum saman við.
  3. Raðið blöndunni á tortillurnar. Setjið fetaost og rifinn ost yfir og rúllið upp. Setjið rifinn ost yfir tortillurnar. Setjið inn í ofn og bakið við 180°c í um 15 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað.
  4. Gerið jógúrtsósuna með því að blanda ab mjólk, jalapeno, límónusafa og salti saman í matvinnsluvél og blanda vel saman.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.