
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.

| 2 msk smjör | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 1 laukur, saxaður | |
| 3 hvítlauksrif, smátt söxuð | |
| 1 msk engifer, smátt saxað | |
| 3 msk karrý | |
| 1 1⁄2 tsk salt | |
| 1 tsk cumin (ekki kúmen) | |
| hnífsoddur cayenne-pipar | |
| 1200 g kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry | |
| 2 tómatar, saxaðir | |
| 1 msk kóríanderkrydd | |
| 120 g kasjúhnetur, ristaðar | |
| 1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
| 100 g strengjabaunir | |
| 1. | Hitið smjör og olíu saman í potti. Setjið lauk, hvítlauk og engifer í pottinn og steikið við vægan hita þar til laukurinn er farinn að mýkjast. |
| 2. | Hrærið í blöndunni allan tímann svo laukurinn brenni ekki við. Bætið kryddum saman við og blandið vel. Steikið í 1-2 mínútur. Bætið kjúklingi saman við og veltið honum upp úr blöndunni. |
| 3. | Steikið kjúklinginn í 3-4 mínútur. Bætið tómötum og kóríander saman við og hitið að suðu. Setjið lok á pottinn og látið malla við meðalhita í 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður. |
| 4. | Setjið næstum allar ristuðu kasjúhneturnar í matvinnsluvél og maukið vel. Bætið maukinu síðan út í pottinn ásamt sykurbaunum og þeim fáeinu kasjúhnetum sem ekki voru maukaðar. |
| 5. | Látið malla í 5 mínútur til viðbótar. |
| 6. | Bætið kókosmjólkinni saman við og hitið en látið ekki sjóða. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply