Hér bjóðum við upp á kjúklingarétt sem er ofureinfaldur og fljótlegur í gerð en sem bragðast um leið dásamlega. Í þennan rétt má nota hvaða grænmeti sem þið eigið í ísskápnum þannig að ef þið borðið ekki sveppi (skamm) þá skiptið þið þeim bara út fyrir eitthvað annað. Eða hreinlega sleppið engu og látið fullt af grænmeti í réttinn. Sósan er tryllingslega góð og mild með ljúfu tómatrjómabragði sem slær nú alltaf í gegn hjá krökkunum. Njótið vel og ef rétturinn í ykkar útgáfu fer á Instagram munið þá eftir að merkja gulurraudurgraennogsalt og auðvitað fylgja okkur þar. Við elskum að sjá það sem þið eruð að gera með uppskriftirnar.

| 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry | |
| 1 pakki beikon | |
| 1 askja sveppir | |
| 1 rauðlaukur | |
| 1 dós (70 g) tomat puré | |
| 1 paprika | |
| 2 msk tómatsósa | |
| 200 g Philadelphia rjómaostur | |
| 2 1/2 dl matreiðslurjómi | |
| salt og pipar |
Kjúklingur í tómatrjómasósu
| 1. | Skerið kjúklingabringurnar í tvennt. |
| 2. | Hitið olíu á pönnu og brúnið bringurnar og kryddið með salti og pipar. Takið af pönnunni og setjið í ofnfast mót. |
| 3. | Skerið beikonið í bita og steikið á sömu pönnu. Setjið beikonið yfir kjúklinginn. |
| 4. | Steikið sveppi og lauk á pönnu upp úr beikonfitunni |
| 5. | Hrærið tómatpúrru, paprikukryddi og tómatsósu og blandið út á pönnuna með grænmetinu. |
| 6. | Bætið rjómaosti og matreiðslurjóma saman við og hrærið þar til rjómaosturinn hefur bráðnað og allt blandast vel saman. Smakkið til með salti og pipar og hellið yfir kjúklinginn. |
| 7. | Setjið inn 200°c heitan ofn í um 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |
Leave your comment to Cancel Reply