

| 6 kjúklingabringur/10 kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry | |
| 2 límónur | |
| 1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
| 2 msk soyasósa frá Blue dragon | |
| 2 msk ljós púðursykur | |
| 1 skarlottlaukur | |
| 2 tsk cumin (ekki kúmen) | |
| 1 tsk kóríander | |
| 1 tsk karrý | |
| 1/2 tsk sjávarsalt | |
| 1/2 tsk hvítlauksduft | |
| 1/2 tsk chilíkrydd (flögur) | |
| 1/4 tsk engifer, fínrifið | |
| svartur pipar |
| 1. | Látið kókosmjólk, cumin, kóríanderkrydd, púðursykur, hvítlauksduft, chilíflögur, skarlottlauk, límónusafa í stóra skál. Rífið niður börkinn af límónunum og setjið saman við allt ásamt salti og pipar. |
| 2. | Skerið kjúklinginn niður og setjið í marineringuna. Geymið í kæli í amk 2 klst eða yfir nótt. |
| 3. | Leggið grillpinna í bleyti í 30 mínútur og þræðið þá kjúklinginn á pinnana. Grillið við meðalhita þar til kjúklingurinn er fulleldaður og penslið með marineringunni á eldunartímanum. |

Leave a Reply