Innihaldslýsing

6 kjúklingabringur/10 kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry
2 límónur
1 dós kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon
2 msk soyasósa frá Blue dragon
2 msk ljós púðursykur
1 skarlottlaukur
2 tsk cumin (ekki kúmen)
1 tsk kóríander
1 tsk karrý
1/2 tsk sjávarsalt
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk chilíkrydd (flögur)
1/4 tsk engifer, fínrifið
svartur pipar
Fyrir 4-6

Leiðbeiningar

1.Látið kókosmjólk, cumin, kóríanderkrydd, púðursykur, hvítlauksduft, chilíflögur, skarlottlauk, límónusafa í stóra skál. Rífið niður börkinn af límónunum og setjið saman við allt ásamt salti og pipar.
2.Skerið kjúklinginn niður og setjið í marineringuna. Geymið í kæli í amk 2 klst eða yfir nótt.
3.Leggið grillpinna í bleyti í 30 mínútur og þræðið þá kjúklinginn á pinnana. Grillið við meðalhita þar til kjúklingurinn er fulleldaður og penslið með marineringunni á eldunartímanum.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.