Kramdar kartöflur með hvítlaukssmjöri og bræddum brie osti er ólýsanleg dásemd og virkilega skemmtilegur snúningur á þessum annars frábæru kartöflum.
Hvítlaukskartöflur með bræddum brie osti
700 g kartöflur
1 msk ólífuolía
salt og pipar
3 msk smjör, brætt
2 hvítlauksrif, pressuð
2 msk timían
225 g brie ostur, skorinn í litla bita.
fersk steinselja, söxuð
- Setjið kartöflurnar á bökunarplötu ásamt olíu, salti og pipar. Látið í 200°c heitan ofn í um 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar þegar gaffli er stungið í þær.
Notið gaffal eða kartöflustöppu til að kremja kartöflurnar aðeins niður. - Blandið bræddu smjöri, hvítlauk og timíani saman í skál. Dreypið yfir kartöflurnar og látið aftur inn í ofn í um 20 mínútur eða þar til þær eru orðnar stökkar og gylltar á lit.
- Þegar 5 mínútur eru eftir af eldunartimanum setjið brie ost yfir hverja kartöfluna. Takið út þegar osturinn er bráðinn. Saltið og piprið og stráið steinselju yfir allt.
Leave a Reply