

| Mini pavlovur: | |
| 4 eggjahvítur | |
| 200 g sykur | |
| 1 tsk vanilludropar | |
| 1 tsk hvítvínsedik | |
| Súkkulaðisósa: | |
| 150 g súkkulaði | |
| 250 ml rjómi frá Örnu | |
| Hindberjasósa: | |
| 1 bolli hindber | |
| 1 msk sykur | |
| Karamellusósa: | |
| 1 dl rjómi | |
| 150 g karamellur | |
| 40 ml rjómi frá Örnu | |
| Annað: | |
| 250 ml rjómi frá Örnu, þeyttur | |
| ber og ávextir að eigin vali | |
| fersk myntulauf | |
| flórsykur |
Skemmtilegur eftirréttur þar sem gestir eru þáttakendur og raða hver á sína pavlovu
| 1. | Þeytið egg og sykur saman í 5-10 mínútur eða þar til þær eru stífþeyttar. Bætið vanilludropum og ediki saman við með sleif. |
| 2. | Mótið marengs á ofnplötu með smjörpappír með skeið eða sprautupoka. |
| 3. | Bakið í 125°c heitum ofni í 40 mínútur. Látið kólna í ofninum. |
| 4. | Súkkulaðisósa: Hitið rjóma og súkkulaði saman yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. |
| 5. | Hindberjasósa: Hitið hindber og sykur saman í potti við vægan hita þar til orðið að hindberjamauki. |
| 6. | Karamellusósa: Hitið karamellur og rjóma saman í potti við vægan hita þar til orðið að karamellu. |
| 7. | Látið sósurnar í litlar skálar og raðið á bakka. Látið marengs á milli þeirra. |
| 8. | Skreytið með ávöxtum og myntublöðum. |
| 9. | Stráið flórsykri yfir allt. |

Leave a Reply