2 eggjahvítur | |
100 g flórsykur | |
50 g suðusúkkulaði, til skreytingar | |
1 tsk vanilluduft | |
35 g Kornflex, mulið | |
50 g suðusúkkulaði, smátt saxað |
Karamellukenndar marengskökur sem slá í gegn
1. | Þeytið eggjahvíturnar og passið að hrærivélaskálin er hrein og þurr. Bætið flórsykri saman smátt og smátt og hrærið áfram. Þegar allur flórsykurinn er kominn út í hrærið í 3 mínútur til viðbótar. |
2. | Setjið vanillu, mulið kornflex og saxað súkkulaðið varlega saman við með sleif. |
3. | Setjið með teskeið á smjörpappír. |
4. | Bakið í 150°c heitum ofni í 15-20 mínútur. |
5. | Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið yfir kökurnar. |
6. | Njótið! |
Leave a Reply