Nú eru mörg farin af stað aftur í fjallgöngur og ýmis konar útivist. Þá er algjörlega lífsnauðsynlegt að vera vel nestuð og vera með nóg af góðri næringu sem gefur mikla orku. Þessi stykki hafa verið gerð á mínu heimili í mörg ár en upphaflega birtist þessi uppskrift á gamla blogginu mínu fyrir heilum 9 árum síðan! Það er hægt að skipta út hráefnum eftir því hvað er til og smekk hvers og eins ef þið gætið bara að því að halda hlutföllunum réttum. Öll hráefnin eru bæði lífræn og vegan frá Rapunzel.
Leave a Reply