Lúxus morgunverðarskál
Lúxus morgunverðarskál
Lúxus morgunverðarskál
Lúxus morgunverðarskál

Innihaldslýsing

1 þroskaður banani
3 msk chia fræ, t.d. frá Himnesk hollusta
35 g grófir hafrar, t.d. frá Himnesk hollusta
1/4 tsk kanill
150 ml hrein möndlumjólk, t.d. frá Isola Bio
80 ml vatn
1 msk hörfræ, t.d. frá Himnesk hollusta
Uppskriftin er fyrir 1 skál. Hægt er að sleppa því að hita grautinn - það er smekksatriði.

Leiðbeiningar

1.Stappið bananann og látið í skál. Bætið chia fræjum, höfrum, kanil, mjólk og vatni saman við. Setjið filmu yfir skálina, látið í kæli og geymið yfir nótt.
2.Daginn eftir setjið blönduna í pott og hitið á lágum hita og hrærið reglulega í. Bætið hörfræjum saman við þegar grauturinn er orðinn heitur.
3.Hellið i skál og skreytið með meðlæti að eigin vali.

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Himnesk Hollusta.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.