
| 4 msk ólífuolía | |
| 1 rauðlaukur, smátt saxaður | |
| 1 stór gulrót, smátt söxuð | |
| 1 sellerí, smátt söxuð | |
| 500 g nautafillet, skorin í 2 cm bita | |
| 300 ml rauðvín | |
| 100 ml nautasoð, heitt | |
| 4 msk tómatpúrra | |
| 680 g tómat passata (maukaðir tómatar) | |
| 10 fersk basilíkulauf, söxuð | |
| 500 g fettuccine/papparadelle eða tagliatelle | |
| 80 g parmesan ostur, rifinn | |
| salt og pipar |
Þessi himneski pastaréttur færir þig örlítið nær Ítalíu með hverjum munnbita. Réttinn er best að hægelda og jafnvel gera kjötsósuna deginum áður en hann er borinn fram. Perfecto!
| 1. | Hitið olíu í potti við miðlungshita og látið lauk, gulrót og sellerí þar í. Steikið í um 8 mín. |
| 2. | Bætið kjötinu saman við og steikið í 2 mínútur. Hellið víninu saman við og látið malla í tvær mínútur. Kryddið með salti og pipar. Látið lok á yfir og látið malla áfram í 30 mínútur. Hrærið af og til í blöndunni. |
| 3. | Eftir 30 mínútur bætið soði, tómatpúrru og passata saman við. Hitið að suðu. Lækkið þá hitann, látið lokið aftur á og látið malla í 1 1/2 klst. Hrærið á 20 mín fresti. |
| 4. | Látið að lokum basilíku saman við og smakkið til með salti og pipar. |
| 5. | Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Setjið í skál og hellið sósunni yfir. Veltið vel saman í 30 sekúntur og stráið parmesan yfir áður en borið fram. |
Leave a Reply