Valgerður Gréta Guðmundsdóttir
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
1. | Hitið ofninn í 180°C. |
2. | Þeytið eggjahvítur með sykrinum þar til blandan er orðin eins og marengs. Rífið þá marsípanið út í með rifjárni og blandið saman með sleikju þar til blandan er eins og deig. |
3. | Setjið deigið í sprautupoka með hringstút og sprautið litlar kökur á plötu klædda bökunarpappír. Hafið kökurnar sirka 3cm í þvermál. Megið alveg hafa þær stærri en þessar kökur eru eins og konfekt svo mér finnst henta betur að hafa þær minni. 0-13 mín eða þangað til þeir verða ljósgylltir |
4. | Kremið: Þeytið smjörið fyrst og bætið svo rest út í fyrir utan karamellurnar. Þeytið kremið vel þar til það er létt og ljóst. Alltaf gott að þeyta krem mjög lengi. Setjið saxaðar karamellurnar út í síðast og hrærið saman með sleikju. |
5. | Smyrjið kreminu á kaldar kökurnar og setjið í frysti að lágmarki 30 mín. |
6. | Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgjunni. Hjúpið hverja köku og frystið aftur. |
7. | Þessar geymast best í frysti en mæli með að taka þær út með smá fyrirvara áður en þær eru bornar fram þar sem karamellurnar í kreminu verða mjög harðar. |
Valgerður Gréta Guðmundsdóttir
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes
Leave a Reply