Innihaldslýsing

3 dósir hakkaðir tómatar
1 púrrulaukur, sneiddur
1/2 laukur, saxaður
3 gulrætur, rifnar gróflega
3 kartöflur, rifnar gróflega
3 hvítlauksrif, smátt söxuð
70 g tómatpúrra
1 l soðið vatn
2 teningar Klar bouillon frá Knorr
1 msk ólífuolía
3 msk rjómaostur
salt og pipar
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Hitið olíu í pott og bætið lauk, hvítlauk og púrrulauk út í og steikið í 1 mínútur. Hrærið stöðugt í blöndunni á meðan.
2.Bætið kartöflum, gulrótum, tómötum, tómatpúrru og krafti saman við. Lækkið hitann og látið malla í 15-20 mínútur.
3.Bætið rjómaosti saman við og smakkið til með salti og pipar.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.