300 g DE CECCO penne pasta | |
2 msk ólífuolía | |
1 laukur, smátt saxaður | |
3 hvítlauksrif, pressuð | |
200 g beikon, skorið bita | |
350 g Rose Poultry kjúklingabringur | |
200 g kirsuberjatómatar | |
3 egg | |
1 dl matreiðslurjómi | |
1 tsk salt | |
handfylli fersk basilíka (má sleppa) | |
parmesan, rifinn |
Fyrir 4
1. | Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkingu. Pastað fer í ofn þannig að varist að ofsjóða. |
2. | Hitið olíu í potti og steikið lauk og hvítlauk. |
3. | Bætið beikoni saman við og steikið í 2 mínútur. |
4. | Skerið kjúklinginn í munnbita og setjið saman við hitt og steikið. |
5. | Skerið tómatana í tvennt og bætið saman við. |
6. | Setjið egg, matreiðslurjóma, parmesanost og salt saman í skál og hrærið vel saman. Bætið smá (um 1/2 dl) af rifnum parmesanosti saman við. |
7. | Bætið elduðu pasta út í pottinn og þá rjómablöndunni. Blandið vel saman. |
8. | Hellið í ofnfast mót og látið í 180°c heitan ofn í 10-15 mínútur. |
9. | Takið úr ofni og stráið parmesan og ferskri basilíku yfir allt. |
Leave a Reply