500 g kjúklingabringur | |
1 laukur | |
3 hvítlauksrif | |
1 tsk chilíflögur | |
1 tsk paprika | |
1,5 tsk karrý | |
salt og pipar | |
1 teningur kjúklingakraftur | |
1 dl vatn | |
500 ml 36% rjómi frá Örnu | |
400 g pastasósa | |
12 lasagnaplötur | |
80 g spínat | |
1 kúla ferskur mozzarella |
1. | Hitið olíu á pönnu. |
2. | Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið. |
3. | Skerið kjúkling í bita og setjið saman við. Brúnið kjúklinginn. |
4. | Bætið kryddum saman við og blandið öllu vel saman. |
5. | Látið pastasósu, kjúklingatening, vatn og rjóma saman við allt. |
6. | Látið malla í 5-10 mínútur við lágan hita. |
7. | Bætið spínati saman við og smakkið til með salti og pipar. |
8. | Penslið botninn á ofnföstu móti með olíu. |
9. | Látið smá af sósunni (bara sósu ekki kjöt) í botninn á sósunni. Leggið pastaplötur yfir. |
10. | Látið þá kjötsósuna yfir plöturnar og plötur yfir það og svo koll af kolli. |
11. | Látið í 200°c heitan ofn í 25 mínútur. |
12. | Takið þá úr ofni og látið mozzarella yfir allt. Látið í ofn í 10 mínútur. |
Leave a Reply