Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
1. | Myljið kexin fyrir botninn fínt niður, t.d. í matvinnsluvél, eða látið í poka og berjið með kökukefli, hin fínasta útrás. |
2. | Takið 1⁄4 af kexinu og geymið. Blandið afganginum saman við brætt smjörið. Setjið í bökuform (24 cm) og þrýstið vel niður. Geymið í frysti á meðan þið gerið fyllinguna. |
3. | Leggið matarlímið í vatn. Hrærið rjómaostinn og bætið við 250 ml af rjóma og flórsykri og þeytið þar til þetta er orðið að þykkri blöndu. Hitið afganginn af rjómanum og bætið matarlíminu þar í (kreistið vatnið úr þeim áður). Matarlímið bráðnar í rjómanum. Kælið og hrærið síðan saman við fyllinguna og hellið yfir botninn. Geymið í kæli í a.m.k. 2 klst. |
4. | Súkkulaðisósa: Hitið rjóma og saxað súkkulaði í potti þar til blandan er orðin að súkkulaðisósu. Kælið lítillega og hellið svo yfir kökuna. Myljið Oreokex yfir allt. |
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply