Gerir 12 stk

Leiðbeiningar

1.Blinis: Setjið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál. Hrærið mjólk og eggjum saman við.
2.Setjið smjör á pönnu og setjið deigið á pönnuna með teskeið. Steikið litlu pönnukökurnar þar til litlar loftbólur eru farnar að myndast og snúið þeim þá við og steikið í örstutta stund.
3.Parmaskinka: Raðið parmaskinkunni á bökunarplötu og setjið inn í 200°c heitan ofn. Hafið inní ofni þar til parmaskinkan er orðin stökk. Brjótið í minni bita.
4.Chilí-rjómaostur: Setjið chilímauk og hunang saman við rjómaostinn og hrærið vel. Smakkið til og bætið við chilímauki eða hunangi eftir smekk. Mér þykir gott að hafa ostinn bragðmikinn.
5.Setjið rjómaost á pönnukökurnar, þá klettakál og að lokum stökka parmaskinku.
6.Berið fram með góðum drykk og njótið.

Þennan rétt hef ég eldað í mörgum veislum og er alltaf beðin um uppskriftina. Hér er hún loksins komin – einn besti forréttur/smáréttur allra tíma.

Njótið vel – Berglind

 

 

 

 

 

 

 

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.