Fyrir 6-8 manns

Leiðbeiningar

1.Myljið kexin fyrir botninn fínt niður, t.d. í matvinnsluvél, eða látið í poka og berjið með kökukefli, hin fínasta útrás.
2.Takið 1⁄4 af kexinu og geymið. Blandið afganginum saman við brætt smjörið. Setjið í bökuform (24 cm) og þrýstið vel niður. Geymið í frysti á meðan þið gerið fyllinguna.
3.Leggið matarlímið í vatn. Hrærið rjómaostinn og bætið við 250 ml af rjóma og flórsykri og þeytið þar til þetta er orðið að þykkri blöndu. Hitið afganginn af rjómanum og bætið matarlíminu þar í (kreistið vatnið úr þeim áður). Matarlímið bráðnar í rjómanum. Kælið og hrærið síðan saman við fyllinguna og hellið yfir botninn. Geymið í kæli í a.m.k. 2 klst.
4.Súkkulaðisósa: Hitið rjóma og saxað súkkulaði í potti þar til blandan er orðin að súkkulaðisósu. Kælið lítillega og hellið svo yfir kökuna. Myljið Oreokex yfir allt.

 

 

 

 

 

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.